Mikið að gera núna... læra og læra.. Það er ekki alltaf dans á
rósum að vera með börn og í meira en 100% námi... en það bjargast
nú.
Er komin með pláss fyrir krakkana til kl 17 í leikskólanum,
sem er ágætt, þá er maður ekki í stresskasti alltaf að ná í þau

reyni nú oftast að sækja þau samt ekki mikið seinna en 16.. En Sara
mín er bara ekkert alltaf of sátt við það sko.. því að þá missir
hún af ávöxtunum sem eru rúmlega fjögur... þannig að ég kem svona 5
mín yfir kannski 2-3 í viku að ná í hana, er þá búin að sækja
Einar. Hann er núna kominn á aðra deild... öll deildin hans flutti
yfir ganginn.. og núna er hann á gömlu deildinni hans Sindra.. en
bara 1 af gamla starfsfólkinu er þar enn og það er Silja. Helga
Björg sem tók við deildarstjórn á Álfheimum er núna deildarstjóri
Krummakots og auðvitað fylgdi uppáhaldið hans Einars, hún Harpa
með

Ég hreinlega dýrka þær Helgu og Hörpu, eru svo frábærar og
góðar, og ekki spillir fyrir að Einar dýrkar þær líka. Hann knúsar
þær alltaf vel á hverjum degi.. og segir "elga mín og appa mín"

bara yndi hann sonur minn.
Annars er lífið hér komið aftur í nokkuð fastar skorður...
elsku yndið hún Ásdís Halla lifir í hjörtum okkar ogég hugsa
reglulega til hennar. Þessarar gullfalegu hetju okkar. Ester og
Smári hafa sýnt ótrúlegan styrk og eru komin með líf sitt með
yndinu henni Maríu Lind í ágætan farveg held ég

Þetta er erfitt
ferli, sorgin og að sætta sig við hlutina, en það gengur nú
ágætlega að vinna sig úr því. Við vitum að henni líður vel núna,
við vitum að elsku Fanný amma passar vel upp á litla engilinn okkar
og það er mikil huggun. Við erum með myndir af þeim báðum upp í
hillu inni í stofu og þar eru allar fallegu englastytturnar okkar
líka, kveiki orðið oftar á kerti heldur en ég gerði og í hvert
skipti sem ég geri það hugsa ég til Ásdísar Höllu, að þetta sé
ljósið hennar.
Veikindin hafa nú herjað ágætlega á heimilið, Einar greyið
eins og alltaf orðið verst úti í þeim... fék í eyrun um daginn...
fór á pensilín í rúma viku. Fékk svo þessa fínu afmælisveislu 28.
janúar og þann 29. á afmælisdaginn sjálfann.... eða aðfaranótt
afmælisdagsins... rauk hann upp í hita, fór í 40,6 stiga hita og
var alveg fárveikur greyið.. hitinn hélst svona hár í hátt í 2
sólarhringa og hann borðaði ekkert og drakk lítið sem ekkert..
vorum send með hann inn á spítala 30. janúar til að athuga með
vökvastatusinn hjá honum, en hann var sem betur fer ekki farinn að
þorna neitt að ráði greyið.. en hann var líka sendur í
lungnamyndatöku sem kom ágætlega út.. var reyndar með veirusýkingu
í öndunarfærum.. en ekkert sem var meðhöndlað... og ég fékk
staðfestingu á því að hann er með barnaastma. Vonandi eldist hann
af honum. hann er enn kvefaður greyið og hóstar enn ljótum hósta..
ætla að fara með hann á morgun eða miðvikudaginn til læknis að láta
hlusta hann.
Sara er alltaf hress... er smá kvef í henni núna, en hraust að
öðru leiti. Er alltaf að æfa sig að telja á ensku og segja nokkur
orð.. spyr mig hvernig á að segja hin og þessi orð á ensku... eða
spænsku, og hermir svo eftir mér. Klár stelpa sem ég á

Svo
er hún alltaf að æfa sig í stöfunum og tekur framförum með hverjum
deginum finnst mér

Hún er farin að spá svolítið í það þegar hún
byrjar i skóla og spyr mig stundum út í hvaða skóla hún fer í og
hverjir verði með henni í bekk... ekki kannski auðvelt að svara
strax

væri ekki leiðinlegt ef hún gæti farið í Áslands- eða
Hraunvallaskóla... fylgir þá meginþorra vinanna úr leikskólanum..
En það kemur allt í ljós á næstu árum
Við hjúin skelltum okkur á árshátíð síðustu helgi.. eða þann
3. feb.. það var fínt, góður matur og svona.. Fórum með tengdó
bara.. svo þegar við nenntum ekki að vera lengur á staðnum
fórum við á Grettisgötu, hóuðum saman smá liði í djamm fram undir
morgun.. ég var komin heim um 5 30 á sunnudagsmorguninn

gott
úthald

Þessi helgi var bara róleg, matarboð á laugardaginn.. Rolli,
Ormur, Amanda og Íris.. Eva komst ekki því hún var að flækjast
eitthvað út úr bænum.. skammskamm Eva Sif ef þú lest þetta

Hún
kíkir bara næst

hehe.. Ég bauð liðinu upp á pizza a la moi.. bara
HRIKALEGA góðar.... var með 2 stórarstórar pizzur, 2 hvítlauksbrauð
sem slógu í gegn.. og auðvitað ostafylltar brauðstangir sem vöktu
ekki síður lukku... allir pakksaddir og sælir í nammskálunum eftir
matinn

Á sunnudaginn komu svo mamma, pabbi og Beggi í kvöldmat, var
með nautalundir, sparikartöflumús, léttsteikt grænmeti, ferskt
salat og rauðvínssósu... geðveikt gott allt saman.. mikið grænmeti
fyrir okkur átkashjúin

erum að borða nokkuð skynsamlega núna..
enginn danski samt.. og hreyfa okkur.. leyfum okkur nammidag á
laugardögum, en verður samt að vera í hófi... þetta er svona...
"mild" útgáfa af Billy Phillips.. líkami fyrir lífið

hehe.. förum
ekki í neina öfga núna í þessu... bara að prófa þetta svona.. maður
finnur strax mun þegar gosið og nammið er farið út.. ég ´drakk ekki
nema 1 1/2 appelsínglas á laugardagskvöldið.. borðaði of mikið
nammi reyndar

og svo á laugardeginum drakk ég rúlega 1/2
fantaglas... næsti laugardagur verður betri.. ég meira að segja
bakaði eplaköku á sunnudaginn, fór með til tengdó og bauð svo uppá
hér heima um kvöldið.. fékk mér smápínu smakk..

er ekkert smá
ánægð með það þar sem ég elska eplakökur.. nammm
jæja komið nóg núna..